1430
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1430 (MCDXXX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Gerreksson Skálholtsbiskup kom til landsins með sveina sína.
- Loftur Guttormsson gaf laungetnum sonum sínum, sem hann átti með Kristínu Oddsdóttur, miklar eignir.
- Bólusótt gekk um Ísland (þetta ár eða 1431).
Fædd
Dáin
- Guðrún Halldórsdóttir, abbadís í Kirkjubæjarklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- Tyrkir, undir Murad 2., unnu grísku borgina Þessalóníku af Feneyingum eftir þriggja daga umsátur.
- Kraká í Póllandi varð Hansaborg.
- 23. maí - Jóhanna af Örk tekin til fanga.
Fædd
- 16. október - Jakob 2. Skotakonungur (d. 1460).
- Dóróthea af Brandenborg, drottning Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur, kona Kristófers af Bæjaralandi og síðan Kristjáns 1. (d. 1495).
Dáin
- 7. janúar - Filippa af Englandi, drottning Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs, kona Eiríks af Pommern (f. 1394).