1353
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1353 (MCCCLIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup og Eysteinn Ásgrímsson munkur héldu af stað í vísitasíuferðir um landið.
- Norðlenskir framámenn sem kvaddir höfðu verið utan á fund konungs komu aftur til landsins með konungsbréf þar sem Ormi Áslákssyni Hólabiskupi var boðið að virða fornan rétt þegnanna og skipað að leysa úr banni þá sem hann hafði bannfært.
- Sáttafundur haldinn í Skálholti á milli Eysteins Ásgrímssonar og Ólafs Bjarnarsonar hirðstjóra, sem hafði látið taka Guttorm bróður Eysteins af lífi. Ólafur sigldi síðan til Noregs og átti ekki afturkvæmt.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 3. mars - Bern gekk í svissneska bandalagið og varð áttunda kantónan í Sviss.
- Svarta dauða talið lokið í Evrópu.
- Giovanni Boccaccio lauk við Tídægru.
Fædd
- Margrét Valdimarsdóttir mikla, drottning Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar (d. 1412).
Dáin
- 2. febrúar - Anna af Bæjaralandi, keisaraynja og drottning Bæheims, kona Karls 4. keisara (f. 1329).
- Símon stolti, stórfursti í Moskvu (f. 1316).